Vinstri græn lýsa yfir efasemdum um nýja eigendastefnu borgarinnar

Vinstri græn í Reykjavík segja það vera „tilraunarinnar virði“ að skipa tilnefningarnefnd til þess að skipa stjórnir fyrirtækja borgarinnar, en telja aðferðafræðina geta skapað þrýsting á aukna einkavæðingu grunnþjónustuverkefna.

Þau þrjú efstu á lista VG fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar sjást hér á mynd. Íris Andrésdóttir sem sat síðasta borgarráðsfund fyrir flokkinn var í 4. sæti á lista í vor.
Þau þrjú efstu á lista VG fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar sjást hér á mynd. Íris Andrésdóttir sem sat síðasta borgarráðsfund fyrir flokkinn var í 4. sæti á lista í vor.
Auglýsing

Vinstri græn í Reykja­vík eru þeirrar skoð­unar að það sé „til­raun­ar­innar virði“ hjá borg­inni að setja á fót til­nefn­ing­ar­nefnd, sem skipa á full­trúa borg­ar­innar í stjórnir fyr­ir­tækja sem borgin á hlut í, en segj­ast þó telja að með aðferða­fræð­inni sem beitt sé gæti skap­ast meiri fjar­lægð við þá stefnu­mörkun og skyldur sem stjórn­mála­menn eru kjörnir til að sinna, sem skapað gæti þrýst­ing á aukna einka­væð­ingu grunn­þjón­ustu­verk­efna.

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti á fimmtu­dag skipan til­nefn­ing­ar­nefndar, en í henni sitja borg­ar­full­trú­arnir Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir odd­viti Við­reisnar sem jafn­framt verður for­maður nefnd­ar­inn­ar, Einar Þor­steins­son odd­viti Fram­sóknar og sjálf­stæð­is­kon­urnar Hildur Björns­dóttir og Ragn­hildur Alda Vil­hjálms­dótt­ir. Einnig á Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sæti í nefnd­inni, en borg­ar­stjóri fer með eig­enda­fyr­ir­svar fyrir hönd borg­ar­inn­ar.

Auglýsing

Ný eig­enda­stefna borg­ar­inn­ar, sem unnin var á síð­asta kjör­tíma­bili, hefur meðal ann­ars þær breyt­ingar í för með sér að skylda verður fyrir borg­ina að til­nefna ákveðið hlut­fall óháðra stjórn­ar­manna í stjórnir fyr­ir­tækja sem borgin á. Þegar stjórn­ar­menn eru fimm tals­ins skulu að minnsta kosti tveir telj­ast óháðir borg­inni og ekki koma úr röðum kjör­inna full­trúa eða starfs­manna henn­ar. Ef stjórn­ar­menn eru sjö eiga þrír stjórn­ar­menn að telj­ast óháðir borg­inni.

Fjallað var um drög að nýju eig­enda­stefn­unni á Inn­herja á Vísi í vor og þar haft eftir Þór­dísi Lóu odd­vita Við­reisnar að verið væri að „minnka póli­tík í stjórnum fyr­ir­tækj­anna og inn­leiða meiri fag­mennsku“.

Vinstri græn, sem sátu í meiri­hluta borg­ar­stjórnar á síð­asta kjör­tíma­bili, virð­ast hins vegar vera með efa­semdir um útfærsl­una sem spratt af vinnu stýri­hóps um nýja eig­enda­stefnu borg­ar­inn­ar. Flokk­ur­inn átti þó full­trúa í þeirri vinnu, en Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi sat fyrir hönd flokks­ins í stýri­hópnum sem vann að gerð eig­enda­stefn­unn­ar.

Íris Andrésdóttir er þriðji varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.

Íris Andr­és­dóttir vara­borg­ar­full­trúi sat borg­ar­ráðs­fund­inn á fimmtu­dag sem áheyrn­ar­full­trúi fyrir hönd flokks­ins og lét bóka í fund­ar­gerð að það væri skoðun Vinstri grænna „að félög í eigu Reykja­vík­ur­borgar og verk­efni þeirra eigi að lúta póli­tískri stefnu og að fram­fylgd hennar og eft­ir­lit sé á ábyrgð kjör­inna full­trú­a.“

„Póli­tískt kjörnir full­trúar eru aldrei und­an­þegnir því að vera fag­legir og vand­aðir í störfum sínum en með þess­ari aðferða­fræði sem hér er beitt gæti skap­ast meiri fjar­lægð við þá stefnu­mörkun og skyldur sem stjórn­mála­menn eru kjörnir til að sinna. Slíkt gæti skapað þrýst­ing á aukna einka­væð­ingu verk­efna sem sann­ar­lega eru grunn­þjón­usta. Það eru áhyggju­efni fyrir íbúa Reykja­víkur og leggj­ast Vinstri græn alfarið gegn þeirri þró­un,“ sagði í bókun áheyrn­ar­full­trú­ans í borg­ar­ráði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent