Laun 30 dýrustu bæjarstjóranna voru samtal 698 milljónir króna í fyrra

Alls eru 64 sveitarfélög á landinu eða eitt sveitarfélag fyrir hverja tæplega sex þúsund íbúa landsins. Þorri þeirra er með færri en tvö þúsund íbúa. Alls voru 100 sveitarstjórnarmenn með yfir eina milljón á mánuði í fyrra.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, þénuðu mest allra borgar-, bæjar- og sveitarstjóra í fyrra.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, þénuðu mest allra borgar-, bæjar- og sveitarstjóra í fyrra.
Auglýsing

Gunnar Ein­ars­son, sem hætti sem bæj­ar­stjóri Garðabæ eftir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, var launa­hæstur allra bæj­ar­stjóra á síð­asta ári með 3,2 millj­ónir króna á mán­uði. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, var með nán­ast sömu heild­ar­tekjur á árinu 2021. Þeir tveir voru einu stjórn­endur sveit­ar­fé­laga sem voru með yfir þrjár millj­ónir króna í heild­ar­tekjur að með­al­tali á mán­uði í fyrra. Þetta kemur fram í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unnar sem birt var í vik­unn­i. 

Alls voru 20 sveit­ar­stjórn­ar­menn með tvær millj­ónir króna á mán­uði eða meira í laun í fyrra og 100 sveit­ar­stjórn­ar­menn voru með yfir eina milljón króna í heild­ar­tekj­ur. 

Auglýsing
Um er að ræða grunn­laun auk ann­arra greiðslna sem telj­ast til tekna, svo sem fyrir setu í stjórnum fyrir hönd þeirra sveit­ar­fé­laga sem við­kom­andi stýr­ir. Við útreikn­ing tekna er miðað við útsvar­s­­­stofn sam­­­kvæmt álagn­ing­­­ar­­­skrá. Í töl­unum eru ekki fjár­­­­­magnstekj­­­ur, t.d. af vöxt­um, arði eða sölu hluta­bréfa. Sleppt er skatt­frjálsum dag­pen­ing­um, bíla­­­styrkjum og greiðslum úr líf­eyr­is­­­sjóði. Þá verður að hafa í huga að inni í tekj­unum getur líka verið ein­­­skipt­is­greiðsla vegna úttektar á sér­­­­­eign­­­ar­­­sparn­aði hjá líf­eyr­is­­­sjóð­i.

Alls 30 með meira en 1,5 milljón á mán­uði

Þegar horft er ein­vörð­ungu á þá sem sátu í borg­ar-, bæj­ar- eða sveita­stjóra­stöðum í fyrra kemur í ljós að 30 slíkir voru með 1,5 millj­ónir króna eða meira í laun á síð­asta ári. Alls námu mán­að­ar­greiðslur til hóps­ins úr opin­berum sjóðum 57,4 millj­ónum króna, sem þýðir að með­al­laun þeirra voru um 1,9 millj­ónir króna á mán­uð­i. 

Á ári fékk þessi hópur því sam­tals um 698 millj­ónir króna í laun sem þýðir að hvert kjör­tíma­bil, miðað við þau laun, kostar um 2,8 millj­arða króna í launa­greiðslur til 30 borg­ar-, bæj­ar- eða sveit­ar­stjóra. 

Vert er að taka fram að hér er um að ræða laun borg­ar-, bæj­ar- og sveit­ar­stjóra á síð­asta ári. Eftir kosn­ing­arnar í vor var samið að nýju við þá sem héldu áfram, eða voru ráðn­ir, og sam­kvæmt frétt Vísis frá því í lok júní eru sex æðstu stjórn­endur sveit­ar­fé­laga með laun frá 2,1 upp í 2,5 millj­ónir króna á mán­uði i grunn­laun. Um er að ræða borg­ar­stjór­ann í Reykja­vík og bæj­ar­stjóra í Garða­bæ, Kópa­vogi, Reykja­nes­bæ, Akur­eyri, Sel­tjarn­ar­nesi, Akra­nesi og Í Ölf­usi. 

Alls eru sveit­ar­fé­lögin á land­inu 64 tals­ins. Fimm þeirra eru með færri en 100 íbúa og 41 er með færri en tvö þús­und íbú­a. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent