Vinstri græn yfir kjörfylgi í fyrsta sinn frá því að ný ríkisstjórn tók við

Vinstri græn hafa bætt við sig fjórum prósentustigum frá því í desembermánuði, samkvæmt nýrri könnun frá Maskínu. Samfylkingin er þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni, en Píratar dala.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Vinstri græn mæl­ast nú með meira fylgi en hreyf­ingin fékk í alþing­is­kosn­ing­unum í lok sept­em­ber og myndu fá 12,9 pró­sent atkvæða, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá Mask­ínu sem birt var í dag. Þetta er í fyrsta sinn frá því að ný rík­is­stjórn var mynduð sem Vinstri græn mæl­ast yfir kjör­fylgi, en í könnun sem Mask­ína fram­kvæmdi í des­em­ber­mán­uði mæld­ist flokk­ur­inn með 8,9 pró­sent og hefur því bætt við sig fjórum pró­sentu­stigum síðan þá.

Sam­fylk­ingin mælist þriðji stærsti flokkur lands­ins og er með 13,4 pró­sent fylgi, sam­kvæmt könn­un­inni, en flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Tveir stærstu flokk­arn­ir, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eru á svip­uðum slóðum og í síð­ustu könn­un­um, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig og mælist nú með 21,9 pró­sent fylgi og Fram­sókn 16,9 pró­sent. Báðir mæl­ast flokk­arnir undir kjör­fylgi sínu frá því í sept­em­ber.

Mynd: Maskína

Píratar dala um rúm þrjú pró­sent

Fylgi stjórn­mála­flokka á lands­vísu er að mestu nokkuð stöðugt á milli mán­aða. Mesta sveiflan á er þó hjá Píröt­um, sem mæl­ast nú með 10,3 pró­sent fylgi, sem er sam­dráttur um 3,2 pró­sentu­stig frá könnun Mask­ínu í jan­ú­ar­mán­uði.

Auglýsing

Aðrir flokkar eru innan við tíu pró­sent­in. Við­reisn bætir aðeins við sig fylgi frá síð­ustu könnun og mælist nú með 9,7 pró­sent fylgi. Flokkur fólks­ins dalar hins vegar ögn og mælist nú með 7,6 pró­sent fylgi.

Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn mæl­ast svo með 3,9 og 3,5 pró­sent fylgi, sem er nær alveg það sama og í síð­ustu könnun Mask­ínu. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mæld­ist með 7,5 pró­sent fylgi í könnun Mask­ínu í des­em­ber, en fylgi við flokk­inn hefur rúm­lega helm­ing­ast síð­an.

Könn­unin var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá. Hún var lögð fyrir á net­inu. Svar­endur voru alls staðar af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri.

Svör voru vegin sam­kvæmt mann­fjölda­tölum Hag­stof­unn­ar. Könn­unin fór fram dag­ana 28. jan­úar til 16. febr­úar 2022 og tóku 3.039 svar­endur afstöðu til flokks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent