Arion banki uppfærir starfskjarastefnu svo hægt sé að „laða að og halda í hæfa leiðtoga“

Arion banki ætlar að kaupa eigin bréf fyrir allt að 28 milljarða króna næsta rúma árið. Gangi þau áform eftir mun bankinn skila næstum 87 milljörðum króna til hluthafa frá byrjun síðasta árs. Starfslokasamningar mega ekki verðlauna mistök í starfi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Auglýsing

Á aðal­fundi Arion banka, sem fram fer 16. mars næst­kom­andi, mun verða lögð fram til­laga stjórnar um að bank­inn fái heim­ild til að kaupa allt að tíu pró­sent hlut í sjálfum sér, eða alls um 150 milljón hluti. Mark­aðsvirði þess hlutar í dag eru um 28,3 millj­arðar króna. 

Heim­ild­ina á að nýta til að setja upp form­lega end­ur­kaupa­á­ætlun eða til að gera hlut­höfum almennt til­boð um kaup bank­ans á eigin bréf­um. Fram­kvæmd end­ur­kaupa á grund­velli heim­ildar þess­arar er háð því skil­yrði að fyrir fram sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands. 

Þetta kemur fram í til­lögum sem lagðar verða fyrir aðal­fund Arion banka og hafa verið birtar í Kaup­höll Íslands. 

Til við­bótar við mögu­leg end­ur­kaup stendur til að greiða 79 pró­­sent af hagn­aði síð­asta árs út sem arð, alls 22,5 millj­­arða króna. Gangi öll þessi áform eftir mun Arion banki vera búinn að greiða hlut­höfum sínum 86,6 millj­örðum króna út úr rekstr­inum með arð­greiðslum og end­ur­kaupum frá byrjun árs 2021. 

Laða að og halda í „hæfa leið­toga“

Í til­lög­unum eru einnig lagðar til ýmsar breyt­ingar á starfs­kjörum stjórn­enda í Arion banka. Í upp­færðri starfs­kjara­stefnu, sem verður lögð fyrir aðal­fund til sam­þykkt­ar, segir meðal ann­ars að almennt skuli „starfs­kjör banka­stjóra, aðstoð­ar­banka­stjóra, fram­kvæmda­stjóra og reglu­varðar vera til þess fallin að laða að og halda í hæfa leið­toga. Starfs­kjara­nefnd stjórnar skal, að fengnum til­lögum banka­stjóra, sam­þykkja við­eig­andi laun­ara­mma, þar sem tekið er til­lit til starfs­kjara­stefnu þess­ar­ar, sam­an­burðar við fyr­ir­tæki sem eru sam­bæri­leg Arion banka að því er varðar starf­semi, stærð, eða orð­spor, og sem sam­ræm­ast fyr­ir­tækja­menn­ingu bank­ans, stefnu, gild­um, áherslu á sjálf­bærni og lang­tíma­hags­munum hlut­hafa bank­ans og ann­arra hags­muna­að­ila.“

Auglýsing
Í til­lög­unum segir að það sé mat stjórnar bank­ans að þær breyt­ingar sem lagðar séu til varð­andi starfs­kjör banka­stjóra, aðstoð­ar­banka­stjóra, fram­kvæmda­stjóra og reglu­varð­ar, styrki frekar grund­völl fyrir bank­ann til þess „að halda hæfi­leik­a­ríkum stjórn­end­um, einkum með því að gera það skýrt að starfs­kjör æðstu stjórn­enda skuli vera til þess fallin að laða að hæfi­leik­a­ríka ein­stak­linga.“ 

Bene­dikt Gísla­­son­, banka­­stjóri Arion banka, var með 69,8 millj­­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóð á síð­­asta ári. Hann fékk auk þess kaupauka upp á 17,5 millj­­ónir króna, sem greiddur var út í formi hluta­bréfa, og kaup­rétti á bréfum í sam­ræmi við kaup­rétta­kerfi bank­ans ofan á það.

Mis­tök eða van­ræksla ekki verð­launuð

Sá hluti sem snýr að starfs­loka­samn­ingum helstu stjórn­enda er einnig upp­færður í til­lög­un­um.

Þar segir að í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum sé hægt að gera „starfs­loka­samn­ing við banka­stjóra, aðstoð­ar­banka­stjóra og fram­kvæmda­stjóra. Skil­málar slíkra samn­inga skulu vera í formi beinna launa­greiðslna og ekki vara lengur en í 12 mán­uði eftir starfs­lok. Starfs­loka­greiðslur skulu að end­ur­spegla árangur í starfi og mega ekki verð­launa mis­tök eða van­rækslu.“

Þá er sá hluti starfs­kjara­stefnu bank­ans sem fjallar um kaupauka­kerfi einnig upp­færður og nú gert ráð fyrir að hann hafi heim­ild til að hætta við kaupauka­greiðsl­ur, sem ekki hafa verið inntar af hendi, eða end­ur­heimta þegar greiddar kaupauka­greiðsl­ur, að hluta til eða að öllu leyti, „til dæmis vegna til­vika þar sem við­kom­andi starfs­maður hefur tekið þátt í eða borið ábyrgð á athöfnum sem hafa valdið veru­legu tapi fyrir bank­ann eða falið í sér meiri háttar brotum á regl­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent