Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir febrúar 2015 var útflutningur 51,2 milljarðar króna og innflutningur var 44,6 milljarðar króna. Vöruskiptin í febrúar voru því hagstæð um 6,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Í janúar voru vöruskiptin hagstæð um 7,1 milljarð króna. Fluttar voru út vörur fyrir 50,5 en inn í hagkerfið fyrir 43,4 milljarða.
Auglýsing