Vöxtur alþjóðageirans of hægur

Efnahagsumsvif fyrirtækja á Íslandi sem starfa á alþjóðlegum mörkuðuim hefur ekki aukist nægilega hratt á síðustu árum, að mati Viðskiptaráðs.

Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs.
Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs.
Auglýsing

Alþjóða­geir­inn, sem inni­heldur fyr­ir­tæki sem starfa á alþjóð­legum mörk­uð­um, hefur ein­ungis vaxið um tæp­lega 3 pró­sent hér­lendis á hverju ári, þrátt fyrir að ráð­ist hafi verið í ýmsar aðgerðir til að bæta hann á síð­ustu árum. Þetta kemur fram í erindi Við­skipta­ráðs á Við­skipta­þingi sem haldið var fyrr í dag.

Sam­kvæmt Við­skipta­ráði standa helstu atvinnu­greinar auð­linda­geirans, sem inni­heldur meðal ann­ars ferða­þjón­ustu, sjáv­ar­út­veg og álf­ram­leiðslu, frammi fyrir vaxt­ar­skorðum í fram­tíð­inni. Því telur ráðið nauð­syn­legt að efla vöxt alþjóða­geirans, þar sem engin tak­mörk séu á verð­mætum sem skapa megi þar.

Auglýsing

Hingað til hafi vöxtur alþjóða­geirans þó verið undir mark­mið­um, sé miðað við mark­mið ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins McK­insey um 10 pró­senta árlegan vöxt. Tryggja þarf gott rekstr­ar­um­hverfi fyr­ir­tækja í geir­an­um, auk þess sem fjölga þarf sér­hæfðu starfs­fólki og auka ætti skil­virkni fjár­mögn­un­ar­um­hverf­is­ins til að ná þessum mark­mið­um, að mati Við­skipta­ráðs. Upp­töku af fund­inum má sjá hér að neð­an.

Við­skipta­ráð segir að bæta megi rekstr­ar­um­hverfi fyr­ir­tækj­anna meðal ann­ars með auknum fyr­ir­sjá­an­leika í hag­stjórn og stöð­ugu gengi íslensku krón­unn­ar. Einnig er því haldið fram að nýlegar launa­hækk­anir hafi verið of miklar og að tryggja þurfi að þær séu í takt við fram­leiðni­vöxt.

Í erind­inu kemur einnig fram að fyr­ir­tæki þurfi að hafa greitt aðgengi að sér­hæfðu starfs­fólki hverju sinni. Hins vegar er erfitt fyrir Ísland að geta sinnt slíkri eft­ir­spurn sökum fámennis og því þurfi að auð­velda fyr­ir­tækjum til að laða til sín erlenda sér­fræð­inga. Hér stingur Við­skipta­ráð upp á að styrkja alþjóð­legt nám og skattaí­viln­anir fyrir sér­hæfða inn­flytj­end­ur.

Til við­bótar við stöðugt rekstr­ar­um­hverfi og fjölgun sér­fræð­inga segir Við­skipta­ráð að greiða ætti fyrir fjár­mögnun sprota­fyr­ir­tækja hér á landi. Það mætti til dæmis gera með því að liðka fyrir afleiðu­við­skiptum með gjald­eyri og skort­sölu líf­eyr­is­sjóða, en sam­kvæmt ráð­inu myndu þessar tvær aðgerðir koma land­inu upp um flokk í alþjóð­legu MSCI vísi­töl­unni og laða að sér fjölda erlendra fjár­festa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent