Yfir 70 prósent landsmanna hlynnt bæði leiguþaki og leigubremsu

Samtök leigjenda létu Maskínu framkvæma skoðanakönnun um afstöðu Íslendinga til bæði leiguþaks og leigubremsu. Í ljós kom að þessar hugmyndir, til að halda aftur af leiguverði, mælast mjög vel fyrir hjá þjóðinni.

Reykjavík
Auglýsing

Rúm­lega 71 pró­sent lands­manna eru hlynnt því að sett verði leigu­þak á leigu­hús­næði á Íslandi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar skoð­ana­könn­unar frá Mask­ínu, sem unnin var fyrir Sam­tök leigj­enda. Enn fleiri, eða rúm 72 pró­sent, styðja að sett verði svokölluð leigu­bremsa á verð leig­hús­næðis hér­lend­is.

Í skoð­ana­könn­un­inni, sem fram­kvæmd var með net­könnun dag­ana 2. til 12. sept­em­ber og náði til 1.249 svar­enda, voru þátt­tak­endur spurðir hvort þeir styddu leigu­bremsu og leigu­þak, en í upp­hafi spurn­ing­anna voru hug­tökin tvö skil­greind með eft­ir­far­andi hætti:

„Leigu­bremsa er það kallað þegar gefið er út við­mið [um] hversu mikið húsa­leiga má hækka yfir til­tekið tíma­bil“ og „Leigu­þak er það kallað þegar gefið er út hámarks­leigu­verð á leigu­hús­næði miðað við stærð, gæði og stað­setn­ing­u.“

Þáttak­endur voru svo spurðir hvort þeir væru hlynntir eða and­vígir því að þessi úrræði yrðu tekin upp hér á landi. Svörin voru sem áður segir þau að rúm­lega 70 pró­sent svar­enda sögð­ust hlynnt bæði leigu­bremsu og leigu­þaki hér­lend­is.

Mynd: Maskína

Í báðum til­fellum sögð­ust um 46-47 pró­sent svar­enda vera „mjög hlynnt“ því að þessi úrræði til að sporna gegn hækk­unum leigu­verðs yrðu tekin upp hér á landi. Lít­ill hluti sagð­ist á móti „mjög and­víg­ur“ slíkum hug­mynd­um, eða á bil­inu 5-6 pró­sent í hvoru til­felli.

Stuðn­ingur við þessar hug­myndir var meiri í hópi þeirra sem búa í leigug­hús­næði en þeirra sem búa í eigin hús­næði, sem ef til vill þarf ekki að koma á óvart. Á meðal leigj­enda sögð­ust 88 pró­sent hlynnt leigu­bremsu og 84 pró­sent hlynnt leigu­þaki, en hlut­fallið var um og yfir 70 pró­sentum í hópi þeirra sem búa í eigin hús­næði.

And­staða mælir nær ein­ungis á hægri kant­inum

Þegar horft er til þess hvernig afstaða fólk er eftir stuðn­ingi við ein­staka stjórn­mála­flokka sést að meiri­hluti væntra kjós­enda allra stjórn­mála­flokka sögð­ust hlynnt bæði leigu­þaki og leigu­bremsu.

Auglýsing

And­staðan við þessar hug­myndir var mest á hægri væng stjórn­mál­anna, en rúm 30 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks segj­ast and­víg hug­mynd­inni um leigu­þak og rúm 28 pró­sent kjós­enda Við­reisn­ar. Hjá væntum kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks sögð­ust einnig tæp 13 pró­sent and­víg hug­mynd­inni um leigu­þak, en í öðrum kjós­enda­hópum er and­staðan við þá hug­mynd undir 10 pró­sent­um.

Kjós­endum þess­ara flokka líst ögn betur á leigu­bremsu, en 26 pró­sent væntra kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks segj­ast and­víg því að slík hug­mynd verði útfærð á Íslandi og rúm 19 pró­sent væntra kjós­enda Við­reisn­ar. Á meðal kjós­enda ann­arra flokka segj­ast innan við tíu pró­sent and­víg því að koma á leigu­bremsu á íslenskum leigu­mark­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent