Yfirkjörstjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, mun ekki aðhafast frekar athugasemda framboða Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Diljár Mistar Einarsdóttur, aðstoðarmanns hans, sem kærðu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra fyrir að brjóta reglur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Prófkjörið hefst á morgun og lýkur á laugardag.
Í sameiginlegri kæru Guðlaugs Þórs, sem keppir við Áslaugu Örnu um fyrsta sætið í prófkjörinu og Diljár Mistar, sem sækist eftir þriðja sæti í prófkjörinu, sagði að Magnús Sigurbjörnsson, bróðir Áslaugar Örnu og kosningastjóri hennar, hafi í aðdraganda prófkjörsins og eftir að framboðsfrestur rann út haft aðgang að flokksskrá Sjálfstæðisflokksins þar sem finna má „nákvæmar og stöðugt uppfærðar upplýsingar um flokksmenn.“
Í úrskurði yfirkjörstjórnar segir að hún hafi farið yfir efni athugasemdanna, aflað sér nánari upplýsinga og kynnt sér gögn málsins. „Magnús Sigurbjörnsson hafði aðgang að flokkskrá Sjálfstæðisflokksins vegna verkefna sem hann vann fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Verkefni Magnúsar snerist að því að tengja saman flokksskrá og nýtt tölvupóstkerfi flokksins. Magnús hafði áður unnið hjá flokknum í rúm fjögur ár. Var aðgangi Magnúsar að flokksskrá lokað þann 1. júní sl. Magnús hefur aldrei haft aðgang að kjörskrá vegna prófkjörsins sem haldið verður 4. og 5. júní nk.
Yfirkjörstjórn fór yfir innskráningar Magnúsar í flokksskrá. Síðasta innskráning Magnúsar var þann 10. maí. Var sú innskráning að beiðni starfsmanns Sjálfstæðisflokksins vegna verkefnis sem Magnús vann að. Framboðsfrestur vegna prófkjörsins rann út föstudaginn 14. maí sl.
Kjörskrá var afhent frambjóðendum þann 18. maí. Þá var viðbót við kjörskrá sem m.a. innihélt nýskráningar aðgengileg öllum framboðum kl. 10.00 mánudaginn 31. maí. Fyrir liggur að frambjóðendur sem vildu nýta sér þau gögn hófu úthringingar strax í kjölfarið. Í ljósi framangreinds er það niðurstaða yfirkjörstjórnar að athugasemdirnar eigi ekki við rök að styðjast og ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum 2. mgr. 4. gr. prófkjörsreglna um jafnan aðgang að gögnum Sjálfstæðisflokksins.“