MP banki segist ekki geta tjáð sig efnislega um hvort nafngreindir einstaklingar eða fyrirtæki eru, eða eru ekki, í viðskiptum við bankann. Bankinn geti ekki rofið trúnað um viðskiptavini eða einstök viðskipti en fullyrðir að vinnulag bankans er í öllum tilvikum í fullu samræmi við þau lög sem gilda um starfsemi fjármálafyrirtækja.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér vegna frétta um að upplýsingar sem áttu að koma Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra illa, og hótað var að gera opinberar í fjárkúgunarbréfi sem stílað var á eiginkonu hans, snérust um að Sigmundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lánafyrirgreiðslu hjá MP banka. Aðaleigandi Pressunnar er Björn Ingi Hrafnsson.
Í yfirlýsingunni er einnig fjallað um tengsl forsætisráðherra við stjórnendur MP banka. Þar segir meðal annars: "Í fréttum hefur jafnframt verið fjallað um tengsl forsætisráðherra við MP banka. Rétt er að fjölskyldutengsl eru á milli forstjóra bankans og forsætisráðherra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bankans."
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka er kvæntur systur Sigmundar Davíðs. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri eignastýringar MP banka, er einn nánasti ráðgjafi forsætisráðherra í efnahagsmálum og hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hann.
Yfirlýsing MP banka:
MP banki vill koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á tilraun til þess að beita forsætisráðherra Íslands og fjölskyldu hans fjárkúgun:
„Fjölmiðlar hafa fjallað um tengsl MP banka við rannsókn lögreglu á tilraun til að kúga fé út úr forsætisráðherra. Fullyrt hefur verið í fréttum að í bréfi sem sent var á heimili forsætisráðherra komi fram að ráðherrann hafi beitt sér fyrir láni frá MP banka til tilgreindra fyrirtækja. Bréfið sem um ræðir er sönnunargagn í lögreglurannsókn og hefur ekki verið gert opinbert. Forsvarsmenn MP banka hafa ekki séð bréfið og þekkja ekki þær ásakanir sem þar eru settar fram.
MP banki getur ekki tjáð sig efnislega um hvort nafngreindir einstaklingar eða fyrirtæki eru, eða eru ekki, í viðskiptum við bankann. Bankinn getur ekki rofið trúnað um viðskiptavini eða einstök viðskipti. Við getum þó fullyrt að vinnulag bankans er í öllum tilvikum í fullu samræmi við þau lög sem gilda um starfsemi fjármálafyrirtækja.
Í fréttum hefur jafnframt verið fjallað um tengsl forsætisráðherra við MP banka. Rétt er að fjölskyldutengsl eru á milli forstjóra bankans og forsætisráðherra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bankans. MP banki er starfræktur með faglegum hætti þar sem hagur viðskiptavina og hluthafa bankans er hafður að leiðarljósi.
Einnig hefur verið fjallað um þá staðreynd að starfsmenn bankans hafa fengið leyfi frá störfum til að vinna með stjórnvöldum að vandasömum úrlausnarefnum sem varða þjóðarhag, þar með talið afléttingu gjaldeyrishafta. Hjá MP banka vinna margir hæfir sérfræðingar. Stjórnvöld hafa leitað eftir því að fá að njóta starfskrafta þriggja starfsmanna bankans vegna tímabundinna verkefna. Einn þeirra hætti hjá bankanum til að geta sinnt slíku verkefni og tveimur þeirra hefur bankinn veitt leyfi frá störfum til að sinna þessum verkefnum. MP banki hefur ekki hagsmuni af því en lítur á það sem samfélagslega skyldu bankans að starfsfólkið fái leyfi frá störfum til að sinna þessum þjóðhagslega mikilvægu verkefnum.“