Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.

4. sæti yfir afleiki vinstristjórnar: VBS

topp5_vef.jpg
Auglýsing

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vand­ræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­mál­um, mak­ríl­deilu­mál­um, Evr­ópu­mál­um, kjara­samn­inga­málum og alls kyns öðrum málum hafa dregið athygl­ina frá for­tíð­inni.

Síð­asta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri-hreyf­ing­unn­i-grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu. Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast með þeim verstu sem íslensk stjórn­völd hafa nokkru sinni tek­ið. Kjarn­inn gerði topp fimm lista yfir þær helstu.

almennt_03_04_2014

Auglýsing

4. Versti Banki Sög­unnar

VBS Fjár­fest­ing­ar­banki fékk 26,4 millj­arða króna fyr­ir­greiðslu frá rík­is­sjóði í mars 2009, mán­uði eftir að rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og VG tók við. Bank­inn núvirti 9,4 millj­arða króna af henni, færði sem eign og gat þannig sýnt fram á sýnd­ar­heil­brigði. Með því keypti VBS sér líf­tíma sem hann stóð, væg­ast sagt, ekki und­ir.

VBS fór loks í þrot í mars 2010. Lýstar kröfur í búið voru 48 millj­arðar króna og ljóst að ein­ungis brota­brot fæst upp í þær. Síðar kom í ljós að staða VBS hafði verið svo slæm á þeim aukna líf­tíma sem ríkið veitti hon­um, og var meðal ann­ars nýttur í ýmiss konar gjörn­inga sem kröfu­haf­ar, slita­stjórn og ákæru­valdið hafa síðar þurft að reyna að vinda ofan af og/eða upp­lýsa um, að Seðla­banki Íslands neydd­ist til að lána bank­anum 53 millj­ónir króna í ágúst 2009 til að hann gæti borgað laun. Morg­un­ljóst virð­ist hafa verið að VBS, sem stundum er sagður skamm­stöfun fyrir Versta Banka Sög­unn­ar, átti aldrei mögu­leika á að lifa af og því er óskilj­an­­legt að rík­is­stjórn þess tíma hafi veitt honum leng­ingu í heng­ing­ar­snör­unni.

Smelltu hér til að lesa topp fimm list­ann í nýj­ustu útgáfu Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjarninn
None