Helgi Seljan, blaðamaður hjá Kastljósi RÚV, svaraði sjö spurningum Kjarnans.
Hvað gleður þig mest þessa dagana?
Stelpurnar mínar þrjár, dætur mínar og unnustan. Þær gleðja.
Hvert er þitt helsta áhugamál?
Þau eru mörg. Mig langar að segja útivist, en vil síður ljúga. Þó er hestamennskan eitthvað sem ég stunda - og helst utandyra, eins og veiði. Hvort tveggja geri ég of sjaldan hins vegar. Bókalestur er algengari og þó hann eigi sér stundum stað á svölunum heima, er hann mest innanhúss.
Hvaða bók lastu síðast?
Guðsgjafarþulu Halldórs Laxness. Þar á undan nýja bók Orra Harðarsonar, Stundarfró. Til hennar hafði ég byggt upp mjög verðskuldaða eftirvæntingu.
Hvert er þitt uppáhaldslag?
MB Rosinn. Ég þarf vonandi ekki að útskýra það fyrir neinum.
Til hvaða ráðherra berðu mest traust?
Spurningin felur í sér kolvitlausar forsendur efnisins. Ráðherrar eiga að bera traust í kjósendur sína en ekki öfugt.
Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?
Grænlands eða Færeyja.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Ég myndi ljúga ef ég segði ekki að ég færi mest og oftast í taugarnar á sjálfum mér.