Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.

RÚV kaupi húsnæði í eigu Mjólkursamsölunnar

520b9ebf3073a.jpg
Auglýsing

Guð­laugur Sverr­is­son, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í stjórn RÚV, nefndi hús­næði Osta- og smjör­söl­unnar að Bitru­hálsi 2 sem mögu­legt hús­næði undir starf­semi stofn­un­ar­inn­ar, á fundi hjá hús­næð­is­mála­nefnd RÚV á dög­un­um. Þetta stað­festir Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, for­maður stjórnar RÚV, en hann á einnig sæti í hús­næð­is­mála­nefnd­inni. Umrædd nefnd hefur hús­næð­is­mál RÚV til skoð­un­ar, en eins og kunn­ugt er stendur til að selja hús­næði stofn­un­ar­innar við Efsta­leiti.

Hús­næði Osta- og smjör­söl­unnar við Bitru­háls er í eigu Kosts ehf., sem er félag í eigu Auð­humlu svf., sem er jafn­framt eig­andi Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar. Auð­humla er í eigu um sjö hund­ruð mjólk­ur­fram­leið­anda í land­inu. Húsið er rúm­lega 4.700 fer­metrar að stærð, en því fylgir ríf­lega 33.000 fer­metra lóð. Sam­kvæmt Þjóð­skrá hljóðar fast­eigna­mat húss­ins upp á röskar 705 millj­ónir króna og bruna­bóta­mat upp á 940 millj­ón­ir.

Þarf um 8000 fer­metra hús­næði

Auglýsing

Sam­kvæmt þarfa­grein­ingu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Deloitte á hús­næð­is­málum RÚV, þarf stofn­unin um 5000 fer­metra undir starf­semi og um 3000 fer­metra geymslu­hús­næði undir búnað og annað sem við­kemur starf­sem­inni. Í hús­næð­is­mála­nefnd RÚV hefur þó enn ekki verið tekin afstaða til þess hversu stórt hús­næði stofn­unin þarf, hún mun taka til­lit til breyttra áherslna í starf­semi RÚV sem enn liggja ekki að fullu fyr­ir.

Í sam­tali við Kjarn­ann vildi Guð­laugur Sverr­is­son ekki láta hafa neitt eftir sér, en ítrek­aði að hann hefði lagt til hús­næði Mjólk­ur­sam­söl­unnar sem dæmi um hús­næði sem gæti hentað starf­semi RÚV og væri til. Ljóst er að fer­metra­verðið á Bitru­hálsi er mun lægra en við Efsta­leiti, en þá hefur Korpu­torgið sömu­leiðis verið nefnt sem mögu­legt hús­næði undir RÚV.

Áhugi á núver­andi hús­næði RÚV

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er nokkur áhugi á að kaupa núver­andi hús­næði RÚV við Efsta­leiti, en hús­næðið hefur enn ekki verið aug­lýst til sölu. Á meðal áhuga­samra eru verk­taka­fyr­ir­tæki og rekstr­ar­fé­lög. Þá kemur sömu­leiðis til greina að flytja starf­semi RÚV af efri hæð­unum í Efsta­leiti og aug­lýsa þær til útleigu. Hús­næð­is­mála­nefnd stofn­un­ar­innar veltir öllum mögu­legum kostum fyrir sér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjarninn
None