Atli Óskar Fjalarson og Elías Helgi Kofoed Hansen eru bestu vinir og starfa báðir í kvikmyndagerð. Þeir hófu ferilinn sem ungir leikarar í kvikmyndinni Órói en færðu sig svo yfir í aðra þætti kvikmyndagerðar, Atli sem framleiðandi og Elías sem handritshöfundur.
Þeir lærðu kvikmyndagerð í LA en búa og starfa núna á Íslandi og eru einnig með hlaðvarpsþáttinn „Atli og Elías“ sem fjallar um þeirra eigin upplifun af kvikmyndabransanum á Íslandi.