Í Veraldarvarpinu er farið yfir liðna viku í erlendum fréttum. Í þætti vikunnar er rætt um hvarf sádiarabíska blaðamannsins Jamal Khashoggi og viðbrögð alþjóðasamfélagsins við meintu morði. Dvínandi vinsældir Frakklandsforseta, Emmanuel Macron, eru gerðar að umtalsefni og breytingar í ríkisstjórn hans. Jafnframt var rætt um óvænt úrslit í kosningunum í Bæjaralandi í Þýskalandi sem gefa til kynna erfiða tíma fyrir Merkel. Enn hefur ekkert gengið hjá Bretum og ESB að ná samkomulagi um hvernig samskiptum þeirra verður háttað eftir útgöngu Bretland. Annar leiðtogafundur ríkjanna var í vikunni. Stefan Löfven, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð, hefur verið veitt umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. Velt er upp þeirri spurningu hvort honum takist betur til en Ulf Kristersson, formanni Moderaterna, sem neyddist til að skila inn umboðinu. Loks er rætt um dvöl Assange í sendiráði Ekvador í London. Umgengni Svíans hefur ekki verið til fyrirmyndar og hafa starfsmenn sendiráðsins lagt honum línurnar.
Kjarninn í samstarfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.