Hvað þarf til að ala upp einstakling? Boð og bönn? Reglur? Í Koma svo! er rætt við einstaklinga sem vinna við eða koma á einhvern hátt að málefnum barna og unglinga. Umsjónarmaður Koma svo! er Héðinn Sveinbjörnsson sem hefur langan feril að baki í vinnu með alls konar fólki og faðir tvíbura í framhaldsskóla.
Í ellefta þætti Koma svo! er rætt við Guðmund Ara Sigurjónsson, tómstunda- og félagsmálafræðing um bókina 9 þrep æskulýðsstarfs. Farið er yfir lykilatriði og megin tilgang við skipulagningu æskulýðsstarfs.