Hvað þarf til að ala upp einstakling? Boð og bönn? Reglur? Í Koma svo! er rætt við einstaklinga sem vinna við eða koma á einhvern hátt að málefnum barna og unglinga. Umsjónarmaður Koma svo! er Héðinn Sveinbjörnsson sem hefur langan feril að baki í vinnu með alls konar fólki og faðir tvíbura í framhaldsskóla.
Í þrettánda þætti Koma svo! er rætt við Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur, verkefnastýru hjá Stígamótum, um fræðslu sem Samfés - samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi og Stígamót hafa sett saman um mörk, samþykki og kynferðislega áreitni. Fræðsluna munu 4500 unglingar fá og fer hún fram í félagsmiðstöðvum um allt land.