Hvað þarf til að ala upp einstakling? Boð og bönn? Reglur? Í Koma svo! er rætt við einstaklinga sem vinna við eða koma á einhvern hátt að málefnum barna og unglinga. Umsjónarmaður Koma svo! er Héðinn Sveinbjörnsson sem hefur langan feril að baki í vinnu með alls konar fólki og faðir tvíbura í framhaldsskóla.
Í 21. þætti Koma svo! er rætt við Bóas Valdórsson, skólasálfræðing í MH, um vinnuviku og venjur framhaldsskólanema. Niðurstöður könnunar sem gerð var eru áhugaverðar og gætu vakið samfélagið til umhugsunar.