Í fyrstu Aðför ársins gera Magnea og Guðmundur upp árið 2017 og fá af því tilefni til sín góða gesti. Borghildur Sturludóttir og Gísli Marteinn Baldursson hafa lengi látið til sín taka í borgarmálum og í þætti vikunnar fara þau um víðan völl enda af nægu að taka.
Vellirnir í Hafnafirði, Gufunesið, hraðbrautarframkvæmdir við Miklubraut, vínkælar, bakarí, og Hagar. Allt er þetta undir í þætti vikunnar og meira til, að ógleymdri pólitíkinni.
Njótið vel á nýju ári kæru hlustendur, Aðförin er rétt að byrja.