Aðförin er alþjóðleg að þessu sinni og fær til sín gesti til að ræða Feneyjartvíæringinn í arkitektúr þetta árið. Þessi mikilvæga hátíð fyrir arkitektaheiminn og skipulagsumræðu kynnti þemað “Freespace” í ár og er stýrt af arkitektunum Yvonne Farrell og Shelley McNamara sem mynda stofuna Grafton architects.
Í þáttinn mættu Sigrún Birgisdóttir og Kristján Örn Kjartansson arkitektar og veltu fyrir sér mikilvægi hátíðarinnar, þemanu og einstaka sýningarskálum á hátíðinni.
Þau segja okkur líka frá mögulegri þátttöku Íslands á hátíðinni.
Aðförin er hlaðvarpsþáttur um skipulagsmál. Umsjón með þættinum annast Magnea Guðmundsdóttir arkitekt og Birkir Ingibjartsson arkitekt.
Kjarninn í samstarfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.