Aðförin – Borgarlínan er besta leiðin

Gestir Aðfar­ar­innar að þessu sinni eru Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir og Hildur Björns­dóttir en þær sitja báðar í skipu­lags- og sam­göngu­ráði hjá Reykja­vík­ur­borg. Sig­ur­borg sem for­maður fyrir hönd Pírata en Hildur fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins.



Á liðnum vikum hefur borg­ar­stjórn sam­þykkt tvö mik­il­væg og stefnu­mark­andi skipu­lags­mál í borg­inni, þ.e. um fram­tíð göngugatna í mið­borg­inni og næstu skref Borg­ar­línu. Eftir þessa tvo mik­il­vægu áfanga þyrsti okkur í frek­ari upp­lýs­ingar og vildum því heyra það beint frá kjörnum full­trúum hvað stæði til. 



Við ræddum um mik­il­vægi Borg­ar­lín­unnar og lýstu þær fyrir okkur næstu skrefum við áfram­hald­andi fram­gang verk­efn­is­ins, þær áskor­anir sem það stendur frammi fyrir og hvernig við­horf til verk­efn­is­ins er að vissu leyti kyn­slóða­skipt. Þær sögðu líka frá því hvernig þær sjá fyrir sér fram­tíð göngugatna í borg­inni og að vinnan næstu mán­uði fælist líka í því að skoða göngu­væð­ingu Kvosar­inn­ar.



Að lokum fórum við hratt yfir þau fjöl­mörgu og spenn­andi svæði í borg­inni sem hægt væri að gera svo miklu meira spenn­andi. Við þökkum Sig­ur­borgu og Hildi kær­lega fyrir kom­una í þátt­inn og lofum okkur að vera von­góð fyrir hönd borg­ar­búa um meiri og betri borg eftir þetta góða spjall.



Aðförin er hlað­varps­þáttur um skipu­lags­­mál. Umsjón með þætt­inum ann­­ast Magnea Guð­­munds­dóttir arki­­tekt og Birkir Ing­i­­bjarts­­son arki­­tekt.



Kjarn­inn í sam­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­starfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þús­undir hljóð­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­anum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.­­­storyt­el.is/kjarn­inn og byrja að njóta. Storyt­el.is, þús­undir hljóð­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­anum þín­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­um.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023