Annar þáttur með völdum pistlum Borgþórs Arngrímssonar er kominn í Hlaðvarp Kjarnans en í honum er fjallað um engan annan en Mads Mikkelsen, einn frægasta Dana fyrr og síðar.
Borgþór Arngrímsson hefur skrifað pistla fyrir Kjarnann frá árdögum miðilsins. Skrif hans njóta mikilla vinsælda hjá lesendum en efnistökin eru af ýmsum toga. Fjallað er um eitt og annað og oftar en ekki hefur efniviðurinn einhverja tengingu við Danmörku.
Borgþór hefur lesið valda pistla sem birtir verða sem hlaðvarpsþættir á næstu vikum undir yfirskriftinni Eitt og annað ...einkum danskt.
Þátturinn er aðgengilegur hér að ofan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.