Fyrir örfáum áratugum hringdi fólk í Fröken Klukku til að vita nákvæmlega hvað klukkan væri. Þótt nútímatækni hafi tekið við hlutverki Frökenarinnar svarar hún enn hér á Íslandi.
Í Danmörku hefur Frøken Klokken lagt á og svarar ekki lengur. Borgþór Arngrímsson fer yfir sögu talvéla í nýjasta þættinum af Eitt og annað ... einkum danskt.
Í þáttunum les Borgþór vinsæla pistla sína sem birst hafa á Kjarnanum.