Í Hismi dagsins fara þeir Grétar og Árni yfir hvers vegna bara fyrirtæki setja sér gildi og lykilorð en ekki einstaklingar. Þá eru möguleikar Grétars til að vinna sem lífstílsráðgjafi ræddir og hvernig hann myndi reyna að kenna Íslendingum leiðinlega hófsemi í neyslu og lífsviðhorfum.
Einnig er því velt upp hvers vegna afgreiðslur í blómabúðum taki svona langan tíma og hvort það sé viðurkennt að djúsa upp bensínstöðvablómvendi.
Að lokum eru svo rætt hvaða möguleika Verktakaflokkurinn ætti í kosningum, sem væri eingöngu skipaður fólki úr raunhagkerfinu og myndi hafa það eina markmið að byggja 4.000 til 5.000 íbúðir á nokkrum mánuðum.