Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, er gestur þáttarins í dag en Grétar Theodórsson er á línunni þar sem hann er í árlegri og mjög svo óskilgreindri viðskiptaferð í Las Vegas í kana-víðum jakkafötum. Farið er yfir virka í athugasemdum og Atli og Árni opna sig og greina opinskátt frá reynslu sinni af samskiptum við þá.
Farið er yfir hvernig fólk svarar í símann, hvernig eigi að bregðast við ef það kviknar ekki á sturtu og hið gamla forna diss að muna ekki hvað einhver heitir er krufið.