Hismið snýr úr sumarfríi og bakkar inn í veturinn með troðfullt skott af nýju efni. Grétar og Árni fara yfir stefnumótunarvinnu sumarsins og gildi vetrarins.
Í þættinum er rætt um hvað stóð upp úr í sumar og er farið yfir framgöngu Johns Snorra og fjallgönguævintýri hans.