Í síðasta Hisminu fyrir jól hefur Árni Helgason fengið Hrafn Jónsson sem gestastjórnanda, eftir að slökkt hafði verið í Survivor-kyndli Þórðar Snæs Júlíussonar. Gestur þeirra Árna og Hrafns er Jóhann Alfreð Kristinsson, grínisti og lögfræðingur. Þeir félagar fara að venju yfir helstu málin; komu Costco til Íslands, lækverðbólguna á Facebook og ÍNN. Þá heldur leitin áfram að heiðarlegasta hádegismatnum.
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Svo má fylgjast með Hisminu á Twitter.