Sveinn Birkir Björnsson hjá Íslandsstofu og fyrrverandi ritstjóri Grapevine og Eyjunnar er gestur Árna Helgasonar og Grétars Theodórssonar í Hisminu þessa vikuna. Í þættinum er farið yfir vetur hinna miklu skandala enda hefur hver opinber stofnunin á fætur annarri gert agaleg mistök. Um helgina fer í Hlaðvarpið umfjöllun um körfubolta í sérstökum hliðarþætti Hismisins - Hismið Special: NBA.
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Svo má fylgjast með Hisminu á Twitter.