Í þetta sinn hefur bókin Shanhai Jing 山海經 eða Bók láðs og laga orðið fyrir valinu til umfjöllunar. Hún er afskaplega skrítin – og sennilega er leitun að jafn furðulegri bók. Hún er uppfull af upptalningum á fjöllum og ám, og flóru og fánu fjarlægra landa, en allt er það lygasögu líkast og harla ævintýralegt. Dýrin í upptalningunni eru gjarnan samansett úr líkamshlutum þekktra dýra, eðlur með vængi, tígrar með fuglsklær og einnig oft með mannshöfuð eða ásjónu.
Jurtirnar og tréin hafa einatt ýmsa yfirnáttúrulega lækningamætti eða blómstranir þeirra eru fyrirboðar. Bókin er líklega á vissan hátt forfaðir seinni tíma bóka um drauga og kraftaverk, eins og furðusögur Pu Songling í Liaozhai og Vesturferðin sem báðar hafa fengið umfjöllun í þessu hlaðvarpi, en munurinn er sá að Shanhai Jing eða Bók láðs og laga er mun fornari, og stíllinn er fremur eins og á einhverskonar landafræði eða náttúrufræði.
Pistill: Jón Egill Eyþórsson