Erfiðleikar Hillary og misgáfulegar fjárfestingar Trump

Síð­asta vika var erfið fyrir Hill­ary Clint­on. Hún féll í yfir­lið á minn­ing­ar­at­höfn um hryðju­verkin í New York 11. sept­em­ber og síðar kom í ljós að hún glímir við lungna­bólgu. Til að kór­óna þetta greindu fjöl­miðlar frá ræðu þar sem Hill­ary sést kalla kjós­endur Trump ófor­skammaðað og þröng­sýnt lið. Þótt ef til vill hafi hún eitt­hvað til síns mála, þá sóttu Don­ald Trump og stuðn­ings­menn hart að Hill­ary og sögðu hana óhæfa til að verða for­seti Banda­ríkj­anna. 

Þessir atburðir komu sér vel fyrir Trump sem sækir á í könn­un­um—þótt Hill­ary Clinton þyki enn sig­ur­strang­legri.

Í öðrum þætti Kana­varps­ins fjalla þeir Hall­grímur Odds­son og Hjalti Geir Erlends­son meðal ann­ars um þrauta­göngu Hill­ary Clint­on, lík­am­legt atgerfi Trump og Clint­on—­sem eru bæði um sjö­tug­t—og helstu atburði síð­ustu viku í kosn­inga­bar­átt­unni vest­an­hafs. Einnig fjalla þeir um kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­un­um. Auk þess sem þeir beina sjónum að fjár­fest­ingum Don­alds Trump og reyna að svara því hverd vegna hann er rík­ur.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023