Kanavarpið kafar ofan í kjörmannakortið

Eftir langa, stranga og óvenju ein­kenni­lega kosn­inga­bar­áttu er loks­ins komið að for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­un­um. Kosn­ing­arnar um þetta valda­mesta emb­ætti heims fara fram á morg­un, þriðju­dag­inn 8. nóv­em­ber 2016, og það er ljóst að barist verður um hvern ein­asta kjör­mann. Þótt flest bendi til þess að Hill­ary Clinton verði næsti for­seti þá á Don­ald Trump en raun­veru­lega mögu­leika. Hann hefur haldið að sér höndum og verið óvenjur­ó­legur síð­ustu tvær vikur á meðan Clinton hefur þurft að berj­ast við áfram­hald­andi ásak­anir um van­rækslu í starfi, sam­hliða þess að dregið hefur saman á milli fram­bjóð­end­anna í könn­un­um.

Kana­varp vik­unnar er sér­sniðið að þörfum þeirra sem hyggj­ast fylgj­ast með kosn­ing­unum á einn eða annan hátt. Þeir Hall­grímur Odds­son og Hjalti Geir Erlends­son fara yfir kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­unum og kafa ofan í helstu bar­áttu­ríkin sem munu ráða úrslit­um. Hverjir eru þessir kjör­menn? Hvað ein­kennir gegn­heil Demókrata­fylki ann­ars vegar og Repúblikana­fylki hins veg­ar? Hvar er bar­áttan tví­sýn, hvers vegna og hvað skilur á milli aðeins örfáum dögum fyrir kosn­ing­ar?

Í lok þátt­ar­ins verður farið allt það helsta sem sófa­spek­úlantar þurfa að vita. Farið verður yfir tímara­mmann, hvenær megi eiga von á fyrstu tölum og hvaða ríki og tölur skipta raun­veru­legu máli fyrir úrslit­in. Þessi þáttur er til­val­inn upp­hitun fyrir þá sem ætla að horfa á kosn­inga­sjón­varpið aðfar­arnótt mið­viku­dags.

Kana­varpið bendir einnig áhuga­sömum á með­fylgj­andi töflu sem gott er að hafa við hönd­ina og sýnir stöð­una í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023