Þetta er ekki brunaæfing: Er Donald Trump búinn að vera?

Hjalti Geir Erlendsson og Hallgrímur Oddsson

Atburða­rás und­an­far­inna daga hefur verið með ólík­indum og má segja að slag­ur­inn um Hvíta húsið hafi sjaldan verið jafn óvæg­inn. Was­hington Post birti upp­tökur frá 2005 þar sem Don­ald Trump heyr­ist stæra sig af því að geta mis­notað konur í skjóli þess að vera frægur og ríkur og í kjöl­farið hafa hátt settir Repúblikanar einn af öðrum afneitað Trump. En staðan er einnig við­kvæm fyrir Hill­ary Clinton sem reynir hvað hún getur að forð­ast umræður um ófagrar ásak­anir á hendur Bill Clint­on.  

Í fimmta þætti Kana­varps­ins ræða þeir Hall­grímur Odds­son og Hjalti Geir Erlends­son meðal ann­ars ummæli Trump, erf­iða stöðu hans og tölvu­árásir á Hill­ary Clint­on. Einnig fara þeir yfir hlut­verk vara­for­seta Banda­ríkj­anna með áherslu á vara­for­seta­efnin Tim Kaine og Mike Pence. 

Í síð­ari hluta þátt­ar­ins er sjónum beint að því sem stundum er kallað Trump­ism eða Trump­ismi, og fyr­ir­bærið skoðað út frá afstöðu Trump til frí­versl­un­ar­samn­inga og milli­ríkja­við­skipta. Don­ald Trump hefur keyrt kosn­inga­bar­áttu sína meðal ann­ars á afdrífa­lausri and­stöðu við frí­versl­un­ar­samn­inga á borð við Frí­versl­un­ar­samn­ing Kyrra­hafs­ríkja (TPP), Frí­versl­un­ar­samn­ing Norð­ur­-Am­er­íku (NAFTA) og fyr­ir­hug­aðan frí­versl­un­ar­samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið (TTIP). Hill­ary þykir hins vegar jákvæð­ari í garð frí­versl­un­ar­samn­inga þótt hún hafi vissu­lega viðrar efa­semd­ir, sér­stak­lega varð­andi TPP.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023