Einkavæðing af því bara

Búið er að leysa sjó­manna­verk­fallið og það var sigur fyrir Þor­gerði Katrínu og litlu rík­is­stjórn­ar­flokk­ana, en samt varn­ar­sig­ur. Það var greini­legt af við­brögðum sjó­manna þegar haldið var á sjó á nýjan leik að skatt­frelsi fæðu­pen­inga var ekki stóra mál­ið.

Konur stýra bara sex af fimm­tíu stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins, sem gera tólf pró­sent. Það er aðeins betra en í fjár­mála­kerf­inu í heild, en tals­vert lak­ara en hjá for­stöðu­mönnum rík­is­stofn­ana, sem eru alveg að fara að ná 40 pró­senta mark­inu.

Rík­is­bank­inn Lands­bank­inn, og þar með skatt­greið­end­ur, hafa orðið af millj­örðum króna vegna söl­unnar á eign­ar­hlut bank­ans í Borg­un, en hóp­ur­inn sem keypti hlut­inn er búinn að fá kaup­verðið og rúm­lega það til baka. Og nú virð­ist einka­væð­ing bank­anna vera að kom­ast á fullt skrið, þrátt fyrir að engin umræða eigi sér stað um það hvernig banka­kerfið á að vera.

Þá eru nokkrir dagar þangað til kemur í ljós hvort kjara­samn­ingar verða teknir upp aftur eða ekki, og Píratar vilja reyna að koma í veg fyrir það með því að þvinga kjara­ráð til að úrskurða þing­mönnum og ráð­herrum lægri laun.

Þetta og margt fleira í Kviku vik­unnar með Þór­unni Elísa­betu Boga­dóttur og Þórði Snæ Júl­í­us­syni.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023