Í nýjasta þætti Kvikunnar er rætt við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, sem býður sig fram til að leiða Eflingu í stjórnarkosningum í byrjun mars, og Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR. Þau eru andlit hinnar nýju róttæku stéttabaráttu sem nú þegar hefur náð tökum á stærsta sveitarfélagi landsins og er að sækjast eftir slíkum í því næst stærsta.
Umsjónarmaður er að venju Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Kvikan er hljóðrás af sjónvarpsþætti Kjarnans sem frumsýndur er á Hringbraut á miðvikudögum klukkan 21.