Í þætti vikunnar er fjallað um brot Seðlabankans á jafnréttislögum, peningaþvætti og spillingu, og þær stórfréttir sem nú heyrast frá Bretlandseyjum eða réttara sagt #Megxit.
Í vikunni sem leið var birt niðurstaða kærunefndar jafnréttismála í máli þar sem Seðlabankinn er talinn hafa sniðgengið mjög hæfa konu fyrir mun minna hæfan karl, en bankinn hefur þrívegis brotið gegn jafnréttislögum frá árinu 2012. En hvað felst í þessari niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála?
Harry Bretaprins komst í heimsfréttirnar í síðustu viku ásamt eiginkonu sinni, Meghan Markle, en Sunna Ósk fjallaði um málið á Kjarnanum í ítarlegri fréttaskýringu um helgina. Hún segir okkur nánar frá þessum vendingum í Kvikunni.
Nú rétt fyrir helgi sendi Samherji frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að fyrirtækið ætli að þróa og innleiða heildrænt stjórnunar- og regluvörslukerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti.
Á sama tíma kom fram í fréttum að ríkisstjórnin ætli að setja 200 milljónir til viðbótar í rannsóknir og varnir gegn peningaþvætti og skattsvikum. Héraðssaksóknari fær viðbótarfjármagn til að rannsaka Samherjamálið og skattayfirvöld munu geta bætt við sig mannafla tímabundið til að rannsaka „ýmis atriði sem þarfnast ítarlegrar skoðunar.“
Bára Huld Beck stýrir þættinum í dag og með henni eru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Sunna Ósk Logadóttir, blaðamaður.