Segir að sé RÚV ekki of stórt

Stefán Eiríks­son, sem tekur við starfi útvarps­stjóra RÚV eftir helgi, segir að hann hafi ekki neinar áhyggjur af því að RÚV sé í betri rekstr­ar­stöðu en sam­keppn­is­að­ilar þess. Í Kviku vik­unnar spjallar Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, við nýjan útvarps­stjóra. 

„Ég upp­lifi það ekki þannig að RÚV sé of stórt í vissum skiln­ingi, en það er vissu­lega stórt. Hlut­verkið sem að Rík­is­út­varp­inu er ætlað lögum sam­kvæmt og sam­kvæmt þjón­ustu­samn­ingi hefur mjög víð­tæku og fjöl­breyttu hlut­verki í sam­fé­lag­inu að gegna. Ég held satt best að segja að það sé mik­ill meiri­hluti almenn­ings og stjórn­mála­manna sem vilja að Rík­is­út­varpið haldi áfram að sinna því hlut­verki en að sama skapi er mik­il­vægt að það séu starf­andi sjálf­stæðir aðrir óháðir fjöl­miðlar og að þeir fái stuðn­ing, eins og mennta­mála­ráð­herra er búin að teikna upp með ákveðnum hætti í sínu frum­varpi, til þess að sinna sínum störfum með góðum hætti.

En að saman skapi verða allir fjöl­miðl­ar, Rík­is­út­varp­ið, sem er á aug­lýs­inga­mark­aði að hluta, og síðan aðrir fjöl­miðlar að aðlaga sig að þessu breytta sam­fé­lagi. Og aðlaga sig að breyttu umhverfi um miðlun og sölu aug­lýs­inga og slíks efn­is. Ef að við­kom­andi er ekki á tánum hvað það varðar þá verður hann hratt og örugg­lega und­ir. Og við höfum séð alveg gríð­ar­legar svipt­ingar á þessum mark­að­i.“

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023