Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, eru gestir Kvikunnar, vikulegs hlaðvarpsþáttar um efnahagsmál og viðskipti sem aðgengilegur er inn á Kjarninn.is og á hlaðvarpssvæði Kjarnans.
[caption id="attachment_7676" align="alignright" width="300"] Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Þorsteinn Víglugndsson.[/caption]
Að þessu sinni var rætt um fjárlögin, skuldir ríkissjóðs og pólitíska stefnu þegar kemur að hinum opinberu sjóðum skattgreiðenda. Jarðhræringar og eldgos voru einnig til umræðu, ekki síst út frá tryggingarlegum forsendum. Er fólk tryggt fyrir tjóni af eldgosi? Sigrún Ragna fór yfir þessi mál og fleiri í þætti vikunnar.