Nú fara hlutirnir að gerast. Töfrarnir umsveipa Emil og Bryndísi. Harry Potter er byrjaður í Hogwarts, hann eignast vini og óvini og kemst að því að ekki er allt með felldu innan veggja galdraskólans, eitthvað sem mögulega tengist því sem reynt var að ræna úr Gringott-bankanum. Er töfradrykkjakennarinn dularfulli Snape á höttunum eftir því? Harry og Ron bjarga Hermione frá fjallatrölli, hún lýgur síðan blákalt að kennurunum og upp frá því verða þau það tríó sem við öll þekkjum. Æsispennandi Quidditch-leikir fara fram, draumaspegill sýnir innstu þrár og unga galdrafólkið lærir sífellt meira um hversu megnugt það er. Emil og Bryndís velta vöngum yfir allskonar atriðum og tengingum, sérstaklega hvað varðar ósæmilega hegðun Harrys; hvort hann eigi sér myrkar hliðar sem hann þarf síðar að takast á við.
Kjarninn í samstarfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.