Systkinin Emil Hjörvar Petersen og Bryndís Freyja Petersen hittast á Skype og hefja aftur för inn í undraheim Harry Potter-bókanna. Bók tvö, um leyniklefann, opnast og við kynnumst Harry og félögum og lífinu í Hogwarts á nýjan leik og umsveipum okkur allri fordæðunni. Dursley-hjónin bóksaflega svelta veslings galdrastrákinn en Ron Weasley og bræður hans koma Harry til bjargar ‒ á fljúgandi bíl! Við kynnumst fjölskyldu Rons og svitnum þegar þeir félagar missa af lestinni til Hogwarts. Malfoy-feðgar hafa augljóslega óhreint mjöl í pokahorninu og nýi kennarinn við Hogwarts, hinn fjallmyndarlegi og dáði Gilderoy Lockhart,virðist ekki vera allur þar sem hann er séður. Skringilegur húsálfur hafði varað Harry við því að snúa aftur í skólann, en hvers vegna skyldi það vera?
Kjarninn í samstarfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kja…inn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.