Pottersen-systkinin Emil og Bryndís hafa um margt að ræða eftir að hafa lesið kafla 25-30 í Harry Potter og Eldbikarnum. Loksins fer Harry í bað með gullna eggið og heyrir þá hvað bíður hans í annarri þraut Þrígaldraleikanna. Við tekur æsispennandi atburðarás í kafi þar sem Harry heldur að vinir sínir drukkni. Barty Crouch ráfar vitstola út úr skóginum, Sirius Black er með bullandi áhyggjur af galdrastráknum, Ron og Hermione eru hjálpleg að vanda og þankalaug Dumbledores afhjúpar ýmislegt um persónur sögunnar. Crouch, Bagman og Karkaroff eru allir orðnir afar grunsamlegir …
Meira handa þér frá Kjarnanum