Í þessum þætti fjalla systkinin Emil og Bryndís um kafla 14-18 í Harry Potter og Fönixreglunni. Prófessor Umbridge fer gjörsamlega hamförum, Sirius Black rabbar við guðson sinn og gefur vafasöm ráð, Quidditch-æfingar fara úr böndunum og þegar allt virðist ætla að ganga á afturfótunum (eins og venjulega) tekst Harry, Ron og Hermione að hóa saman 25 aðra nemendur á laun í þeim tilgangi að æfa sig í vörnum gegn myrku öflunum ‒ því Voldemort er snúinn aftur. Reynsla Harrys úr fyrri bókum kemur sér þá afar vel.
Meira handa þér frá Kjarnanum