Systkinin Emil og Bryndís hittast á Skype og ræða kafla 24-27 í Harry Potter og Fönixreglunni. Enginn annar en hinn illkvittni Snape þarf að kenna Harry varnargaldurinn hughrindingu til að koma í veg árásir Voldemorts, hin glögga og ráðagóða Hermione skipuleggur óvænt blaðaviðtal sem breytir skoðun margra á Harry, Ron sökkar aftur í Quidditch, Hagrid hefur enn eitthvað fela, kentár er orðinn kennari við skólann, Umbridge verður æ verri og Dumbledore sýnir á sér nýjar hliðar. En hvað ætlast hann eiginlega fyrir?
Meira handa þér frá Kjarnanum