Konfúsíus er að öllum líkindum áhrifamesti fræðimaður allra tíma, en í tvö þúsund ár var börnum elítunnar kennd heimspeki hans með það að marki að gera þau að hæfum stjórnendum og góðum manneskjum. En í hverju felst konfúsíanismi? Er hann trúarbrögð, stjórnmálastefna, lífsspeki eða uppeldisfræði? Og hvernig í ósköpunum tókst lágt settum embættismanni að verða að goði – tilbeðnu um alla Austur-Asíu fyrir visku sína?
Í þessum þætti verður reynt að svara þessum spurningum en fókusinn verður aðallega á sögu Kína frá því siðmenning hófst við gula fljótið þar til Liu Bang stofnaði Han-veldið. Stuðst er við þýðingar Ragnars Baldurssonar á Speki Konfúsíusar frá 2006, í beinum tilvitnunum í meistarann.
Myndin með þættinum sýnir Ashikaga-skólann, elstu menntastofnun í Japan, en skólinn var mögulega stofnaður á níundu öld til að kenna konfúsísk fræði – hundruðum ára áður en fyrstu háskólar í Evrópu voru stofnsettir.
Snæbjörn Brynjarsson rithöfundur og þáttastjórnandi Sögu Japans hefur lengi verið heillaður af landinu og hér heldur hann áfram að fjalla um sögu þess og menningu. Hægt er að nálgast og hlusta á fleiri þætti í þáttaröðinni hér.