Árið er 538 og búddisminn er á leiðinni til Japans. Ekki í för með trúboðum, heldur opinberum sendimönnum frá örvæntingarfullu smáríki á Kóreuskaganum sem býður þetta hernaðarleyndarmál, þennan helgidóm, í skiptum fyrir aðstoð.
Í áraraðir hefur Mononobe ættin tryggt hlutleysi Japans í stríðum kóreuskagans, enda ber ættbálkurinn höfuðábyrgð á vopnaframleiðslu konungrsíkisins og lítur á þetta sem óþarfa aukakostnað að halda út í óþarfa ævintýri í fjarlægu landi.
Þar að auki grefur boðskapur búddismans undan virðingarstöðu þeirra gömlu ætta sem rekja sig til Shinto-goðanna, eins og Mononobe ættin gerir. Hún óttast að þessar sérkennilegu hugmyndir fái jafnvel goðin til að reiðast.
En ekki allir sjá þetta sömu augum. Ungur ættbálkur með kóreskan uppruna sér í þessu tækifæri til að ná völdum í þessum hluta Austur-Asíu. Nú er Kuml-tímabilinu lokið og Asuka-tímabilið hefst, fyrsta blómaskeið búddisma í Japans.
Mynd þáttarins sýnir elstu búddastyttu Japans, þriggja metra hátt líkneski sem statt er í Asuka hofinu.
Snæbjörn Brynjarsson er þáttastjórnandi Sögu Japans.