Árið 1183 lagði samúræinn Tadanori líf sitt í hættu til að koma ljóðum sínum í réttar hendur. Í miðri orrustu laumaði hann sér yfir víglínur óvinarins svo hann gæti afhent lærimeistara sínum Shunzei allt ljóðasafn sitt.
Í þessum þætti ræðum við ævi Shunzei og kynnum til sögunnar son hans Teika sem er mögulega eitt áhrifamesta skáld Japanssögunnar.
Mynd þáttarins er ukiyo-e eftir Kogyo Tsukioka, sem sýnir senu úr Noh-leikritinu Shunzei Tadanori sem nefnt er í þættinum.