Í þessum nýja hlaðvarpsþætti er fjallað um umhverfismál, endurvinnslu, sjálfbærni og sorplausan lífsstíl. Umsjónarmenn eru Freyr Eyjólfsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir.
Þóra Margrét hefur vakið athygli fyrir erindi sín um flokkun, endurvinnslu og sorplausan lífstíl en hún þýddi bókin Zero Waste Home – Engin Sóun eftir Bea Johnson sem kom út í byrjun árs. Freyr Eyjólfsson hefur unnið við útvarp og fjölmiðla í ein 20 ár en starfar nú sem samskiptastjóri Terra.
Terra kostar þáttinn.