Áfram Ísland!

Evr­ópu­mótið í knatt­spyrnu hefst í Hollandi á sunnu­dag­inn með opn­un­ar­leik Hol­lend­inga og Norð­manna. Íslenska kvenna­lands­liðið tekur þátt í mót­inu og leikur sinn fyrsta leik á þriðju­dag­inn, 18. júlí gegn Frökk­um.

Edda Sif Páls­dótt­ir, íþrótta­f­rétta­kona á RÚV, hefur fylgst vel með gengi lands­liðs­ins og stýrir umfjöllun RÚV af mót­inu. Hún ræðir við þá Árna, Þor­geir og Þór­hall um mót­ið.

Íslenska lands­liðið hefur kom­ist á síð­ustu þrjú Evr­ópu­mót og sú reynsla gæti haft jákvæð áhrif á árang­ur­inn úti. Auk þess var Pepsí­deild kvenna tekin fyrir sem og almenn umfjöllun í heim­inum um kvenna­bolt­ann.

Sparkvarpið for­vitn­að­ist um hvernig það væri að koma sem kven­maður inn í karllægan heim íþrótta­f­rétta. Edda Sif hefur unnið í um 10 ár á Rík­is­út­varp­inu og að mestu sem íþrótta­f­rétta­mað­ur.

Ásamt því að ræða um EM er spjallað um flottan árangur banda­ríska kvenna­lands­liðs­ins og mögu­legar ástæður þess. Sparkvarpið veltir svo fyrir sér hvort Pepsí­deild kvenna gæti orðið þunga­vigt­ar­deild í Evr­ópu á næstu árum.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023