Föllnu liðin

Árni Þórður Rand­vers­son og Þór­hallur Vals­son fara yfir nokkur lið á Englandi sem hafa átt erfitt upp­dráttar upp á síðkastið í Sparkvarps­þætti dags­ins. Þessi lið eiga það sam­eig­in­legt að hafa fallið niður pýramíd­ann í ensku deild­ar­keppn­inni og hafa skraut­legir eig­endur átt þátt í því.

Coventry City er lið sem spilar í fjórðu efstu deild á Englandi þrátt fyrir að hafa verið meira og minna í efstu deild á 10. ára­tug síð­ustu ald­ar. Stuðn­ings­menn lifa í óvissu varð­andi klúbb­inn enda eru líkur á því að þeir muni missa völl­inn sinn eftir tíma­bilið og verða heim­il­is­laus­ir.

Charlton Athletic er líka í miklu basli, þeir spila í þriðju efstu deild eftir að hafa fallið síð­ast 2016. Stöðugt stríð milli stuðn­ings­manna liðs­ins og belgíska eig­anda liðs­ins hefur orðið til þess að stuðn­ings­menn­irnir hafa mót­mælt mikið fyrir leiki og á meðan leikjum stend­ur.

Að lokum fjöllum við aðeins um hrak­farir Black­burn Rovers sem spilar í sömu deild og Charlton. Kjúklinga­bænd­urn­ir, Steve Kean og Ryan Nel­sen, eru bara partur af því sem við tölum um. Hlust­ið.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023