Þegar leikmenn blanda sér í pólitík

Í Sparkvarpi vik­unnar tóku þeir Árni og Þor­geir fyrir leik­menn sem hafa stungið tánum í póli­tík. Ein­hverjir vilja meina að pólítík og fót­bolti eiga að vera aðskil­inn hlut­ur. Þá eru fót­bolta­menn oft gagn­rýndir fyrir að tjá sig um fátt annað en því sem við kemur að fót­bolta. Þó eru nokkrir sem gera allt sitt besta til þess að hafa áhrif utan vall­ar.

Eitt þekktasta dæmið er George Weah, fyrrum fram­herji Líberíu sem var kos­inn besti leik­maður heims árið 1995. Stuttu eftir að ferl­inum lauk hjá Weah fór hann í fram­boð til for­seta í heima­land­inu Líber­íu. Strák­arnir ræddu um þá leik­menn sem hafa skipt sér að hinum ýmsu mál­efnum utan vallar og hvernig póli­tíkin bland­ast inn í fót­bolt­ann.

Auk þess var talað um hvort að Ísland þurfi að taka aftur upp undir 21 árs lands­lið kvenna. Engar keppnir eru á vegum UEFA fyrir yngri lands­lið eldri en 19 ára. Talið er að þetta hamli þróun leik­manna í kvenna­bolt­anum og hafa stærri þjóðir verið að setja á lagg­irnar yngri lands­lið sem keppa æfinga­leiki sín á milli.

Sparkvarpið er á Twitter - @sparkvarpid

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023