Stóru málin víla ekki fyrir sér að kynna sér umdeild sjónarmið, og fengu því í heimsókn til sín fjölmiðlakonuna Ernu Ýr Öldudóttur, sem hefur haldið fána frjálshyggjunnar á lofti á opinberum vettvangi. Hugmyndafræðin er ansi umdeild, og þá ekki síst eftir hrunið, en þó er ljóst að það er býsna mikið af frjálshyggju í nútímastjórnmálum, og því ekki seinna að vænna að kynna sér þessa umdeildu stefnu sem virðist satt að segja, vera ansi kuldaleg þegar kemur að fólki.
Meira handa þér frá Kjarnanum