Stóru málin fengu til sín verkalýðsstjörnuna Sólveigu Önnu Jónsdóttur sem bíður sig fram til formanns Eflingar. Sólveig hefur vakið mikla athygli fyrir skelegga framgöngu og skýra sýn á verkalýðsmál, nokkuð sem mörgum hefur fundist skorta á hér á landi ansi lengi.
Hún segir kröfur hennar og meðframbjóðenda hennar ekki flóknar, að það dugi launamönnum að vera í einni vinnu til þess að framfleyta sér sjálfum.